Sport

Hlynur leggur skóna á hilluna

Hlynur Birgisson, sem leikið hefur knattspyrnu með Þór á Akureyri undanfarin ár, er hættur að leika knattspyrnu eftir langan feril. Hlynur var um tíma atvinnumaður hjá Örebro í Svíþjóð og spilaði tólf landsleiki fyrir Íslands hönd, auk fjölda leikja fyrir yngri landsliðin. "Mér fannst þetta vera ágæt tímasetning núna. Ég er að stunda nám í fjölmiðlafræði og ætla að einbeita mér að því. En eflaust verður erfitt að slíta sig alveg frá fótboltanum," sagði Hlynur.Hlynur lék með Þór í sumar en gengi liðsins olli nokkrum vonbrigðum eftir að stefnan hafði verið sett á að komast í efstu deild á nýjan leik. "Auðvitað hefði verið skemmtilegra ef okkur hefði gengið betur í sumar. Við stefndum óneitanlega á það að komast upp um deild en það markmið náðist ekki. En ég held að framtíðin sé björt hjá Þór. Það eru margir góðir ungir leikmenn hjá félaginu sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða í framtíðinni."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×