Sport

Uefa-bikarinn í kvöld

Fjölmargir leikir fara fram í Evrópukeppni félagsliða í dag og í kvöld, en tveimur þeirra er þegar lokið. Stuttgart tryggði sig áfram í riðlakeppnina nú áðan, þrátt fyrir tapi gegn NK Domzale 1-0, en þýska liðið vann fyrri leikinn 2-0. Landar þeirra í Leverkusen voru ekki jafn heppnir og féllu úr keppni fyrir CSKA Sofia, samanlagt 2-0. Bolton er nú að spila við Lokomotiv Plovdiv í Búlgaríu, en þar er staðan 1-0 fyrir heimamenn og það þýðir að búlgarska liðið er á leið áfram í keppninni ef það verður niðurstaðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×