Sport

Everton úr leik

NordicPhotos/GettyImages
Everton er fallið úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa sigrað rúmenska liðið Dinamo Búkarest 1-0 í kvöld, með marki frá Tim Cahill. Dinamo vann fyrri leikinn í Rúmeníu 5-1 og komst því áfram samanlagt 5-2. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Everton, sem hefur byrjað leiktíðina skelfilega í ár, eftir gott gengi á síðustu leiktíð. Ljótt atvik gerðist í leiknum í kvöld, þar sem Mikael Arteta fékk olnbogaskot í hnakkann og lá titrandi í vellinum eftir. Menn óttuðust að hann væri lífshættulega meiddur, en hann ku vera á batavegi eftir áreksturinn harða þó hann þurfi að vera á sjúkrahúsi í nótt. David Moyes sagði sína menn hafa gert það sem þeir gátu í leiknum. "Við vorum undir 5-1 fyrir leikinn og því vissi maður ekki alveg hverju var við að búast af strákunum í þessum leik. Við hefðum þurft að skora annað mark í fyrri hálfleik til að eiga möguleika, en vonandi gefur þessi sigur okkur byr undir báða vængi í deildarkeppninni," sagði Moyes.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×