Sport

Gunnar skoraði - Halmstad áfram

Markahrókurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir lið sitt Halmstad í Svíþjóð, þegar það gerði sér lítið fyrir og sló Sporting frá Lissabon út úr Evrópukeppni félagsliða í Portúgal í kvöld. Gunnar heiðar skoraði fyrsta mark Halmstad í 3-2 sigri liðsins eftir framlengingu í kvöld, en portúgalska liðið vann fyrri leikinn 2-1 í Svíþjóð. Sannarlega eftirtektaverður sigur hjá Gunnari og félögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×