Sport

Stack sýknaður

Markvörður Arsenal, Graham Stack, sem er í láni hjá liði Reading, var í dag sýknaður af nauðgunarákæru sem hann fékk á sig fyrir ári síðan. Hann hafði verið sakaður um að hafa nauðgað 22 ára gömlum laganema í London þann 1. september í fyrra. Vinur Stack var einnig sýknaður og í réttarsalnum mátti heyra fagnaðaróp þegar ljóst var að þeir félagar slyppu við dóm. Dómarinn var ekki hrifinn af látunum, en umboðsmaður Stack sagðist feginn því að góð niðurstaða hafi fengist í málinu og sagði skjólstæðing sinn alsaklausan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×