Sport

Cisse yfirheyrður

Djibril Cisse, leikmaður Liverpool hefur verið kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglunni í London en hann er sakaður um að hafa lagt hendur á 15 ára gamlan unglingspilt. Meint atvik á að hafa átt sér stað á föstudagskvöld þegar Cisse var í auglýsingatökum en þar var settur á svið ímyndaður landsleikur milli Englendinga og Frakka. Cisse sem kostaði 14 milljónir punda þegar hann kom til Liverpool í fyrra er á varamannabekknum í leiknum gegn Chelsea sem nú stendur yfir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×