Sport

Veigar með tvö fyrir Stabæk í dag

Veigar Páll Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Stabæk í 4-1 heimasigri á Kongsvinger í norsku 1. deildinni í dag. Sigurinn færði Stabæk skrefi nær sæti í úrvalsdeildinni að ári en liðið er nú efst með 58 stig, átta stigum ofar en Hønefoss sem er í 3. sæti deildarinnar og aðeins fjórar umferðir eru eftir. Veigar hefur þar með skorað 9 mörk í 13 leikjum fyrir Stabæk á tímabilinu og er í 7. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar. Mörk Veigars í dag voru þriðja og fjórða mark liðsins og komu á 66. og 73. mínútum. Sandefjord er í 2. sæti með 53 stig eftir 3-1 sigur á Bryne í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×