Sport

Nistelrooy fer ekki frá United

NordicPhotos/GettyImages
Umboðsmaður Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United hefur gefið það út að hollenski framherjinn sé ekki á leið frá liðinu eins og fram hefur komið í fréttum undanfarna daga, en Nistelrooy hefur verið orðaður við Real Madrid á Spáni. "Ruud er ánægður hjá Manchester United og er meira að segja að kaupa sér hús í borginni," sagði umboðsmaðurinn. "Hann hefur verið búið í leiguhúsnæði fram til þessa, en nú vill hann kaupa sér hús og af hverju ætti hann að vera að því ef hann vill fara frá félaginu? Þessar endalausu fréttir um að hann vilji fara frá United eru þvættingur og það er ekkert til í þeim," sagði umboðsmaðurinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×