Sport

Sammi vill mæta Roma

NordicPhotos/GettyImages
"Stóri-Sam" Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, segist vonast eftir að mæta einhverjum af stóru liðunum í Evrópu þegar dregið verður í riðla í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu á morgun. "Mörg lið í Evrópu eru farin að taka eftir því hvað við erum að gera, en sú var ekki raunin fyrir tveimur árum. Ég vona að við drögumst í riðil með einhverjum af stóru liðunum í Evrópu eins og Roma eða Monaco, það væri gaman að taka á móti slíkum liðum heima á Reebok vellinum," sagði Allardyce.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×