Sport

Bjarni til Noregs

Valsmaðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson fær tilboð í hendurnar í dag frá norska liðinu Odd Grenland en hann var til reynslu hjá liðinu í síðustu viku.  "Þeir hringdu í mig og spurði hvort ég hefði áhuga á því að semja við þá og ég játti því. Mér leist nokkuð vel á aðstæður hjá Odd Grenland. Ef tilboðið er gott á ég von á því að semja við þá en ég ætla reyndar að halda því opnu að fara einnig til reynslu hjá Vålerenga eftir landsleikina sem eru framundan og jafnvel einnig til liðs í Danmörku sem ég veit ekki hvað heitir," sagði Bjarni Ólafur í samtali við Fréttablaðið. Bjarni Ólafur er samningsbundinn Val til ársloka 2006 og því þarf Odd Grenland að semja við Val um kaupverð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×