Sport

Owen fer aldrei aftur frá Englandi

Framherjinn Michael Owen segir að hann muni aldrei leika annarsstaðar en á Englandi í framtíðinni, eftir að hann komst að því hvað það henti sér vel að leika í heimalandinu. "Ég get ekki hugsað mér að fara til útlanda að spila aftur, en ég sé þó ekki eftir því að hafa farið til Spánar, því það var eitthvað sem ég þurfti að gera. Ég fór til Spánar með opnum huga, en ég vissi alltaf innst inni að ég myndi snúa aftur í ensku úrvalsdeildina," sagði Owen, sem segist njóta hverrar mínútu síðan hann sneri aftur til heimalandsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×