Sport

Keane hefur trú á arftaka sínum

Fyrirliði Manchester United, Roy Keane, segist hafa fulla trú á Alan Smith sem arftaka sínum í varnarhlutverkinu á miðjunni og segir að það eina sem Smith þurfi sé tími og alvöru leikir til að ná góðum tökum á nýju stöðunni. "Ég held að Alan hafi líkað ágætlega að spila þessa stöðu þegar hann fékk að prófa að spila hana hjá Leeds. Hann er eflaust fyrsti maðurinn til að viðurkenna að hann þurfi tíma til að aðlagast, en ég held að hann geti orðið góður miðjumaður ef hann fær góðan tíma og nokkra leiki gegn sterkum liðum í reynslubankann. Ég er alltaf tilbúinn til að gefa honum góð ráð ef hann kærir sig um það og mér hefur fundist hann standa sig ágætlega. Hann fær nú góðan tíma til að sanna sig úr því að ég er meiddur," sagði Keane.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×