Sport

Everton vill Gunnar Heiðar

Stuðningsmannasíða enska úrvalsdeildarfélagsins Everton, bluekipper.com, greindi frá því nú skömmu undir hádegið að félagið hafi hug á að fá markamaskínuna Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Gunnar Heiðar sem leikur með Halmstad í Svíþjóð hefur skorað alls 23 mörk í 34 leikjum fyrir sænska liðið á tímabilinu og hefur sú frammistaða vakið mikla athygli víðsvegar um Evrópu. Gunnar skoraði mikilvægt mark fyrir Halmstad gegn Sporting Lissabon í Evrópukeppni félgsliða í síðustu viku og hefur nú skorað þrjú mörk í fjórum leikjum í þeirri keppni. Ekki er ljóst hver verðmiðinn á Eyjamanninum er orðinn en hann hækkar nú með hverjum leik. Everton er í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með þrjú stig eftir sjö leiki og er bæði fallið út úr Meistaradeildinni og Evrópukeppni félagsliða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×