Sport

Ferdinand heldur líklega sæti sínu

NordicPhotos/GettyImages
Varnarmaðurinn Rio Ferdinand mun að öllum líkindum halda sæti sínu í vörn enska landsliðsins þegar það mætir Austurríki á laugardaginn, en miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Sol Campbell myndi taka sæti hans, eftir að Ferdinand hefur verið nokkuð frá sínu besta að undanförnu. Þá þykir líklegt að John Terry verði við hlið Ferdinand í hjarta varnarinnar, en Jamie Carragher færi sig í vinstri bakvörðinn í stað Ashley Cole og hinn leggjalangi Peter Crouch tekur stöðu Wayne Rooney í framlínunni við hlið Michael Owen.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×