Sport

Arsenal íhugar kaup á miðjumanni

NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er á höttunum eftir miðjumanninum Hossam Ghaly hjá Feyenoord í Hollandi. Hossam er 23 ára gamall Egypti og hefur hann viðurkennt að það væri draumur fyrir sig að ganga í raðir enska liðsins. Arsenal er enn sagt vera á höttunum eftir manni til að fylla skarð Patrick Vieira og félagið hefur lengi fylgst með Ghaly, sem Wenger þykir hafa allt til brunns að bera til að koma í stað Vieira. "Ég á mér draum og það er að spila fyrir Arsenal. Þeir spila fallegasta bolta allra liða í heiminum og það er frábært að fylgjast með þeim spila," sagði Ghaly.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×