Sport

Meiðsli í herbúðum Englendinga

Nú hefur verið staðfest að Steven Gerrard mun ekki verða með Englendingum í leiknum gegn Pólverjum um efsta sætið í sjötta riðlinum í undankeppni HM, en auk hans verða þeir Ashley Cole, Sol Campell og David Beckham frá vegna meiðsla og leikbanns. Bæði Englendingar og Pólverjar hafa tryggt sér sæti á HM, en leikurinn ræður engu að síður úrslitum um það hvort liðið hreppir efsta sæti riðilsins. Steven Gerrard meiddist á fæti í leiknum gegn Austurríkismönnum í gær og talið er að hann muni missa úr 2-3 vikur með Liverpool fyrir vikið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×