Sport

Gallas vill fara frá Chelsea

NordicPhotos/GettyImages
Franski varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea hefur gefið það út að hann muni jafnvel fara frá liðnu þegar samningur hans rennur út eftir næsta keppnistímabil, því hann segist þurfa nýja áskorun áður en hann leggur skóna á hilluna. "Ég hef verið hjá Chelsea síðan 2001 og þetta hefur verið gaman, en ég er 28 ára í dag og ég held að ég vilji prófa eitthvað nýtt áður en ég hætti. Ég þarf að taka stóra ákvörðun þegar samningur minn hérna rennur út," sagði Gallas og benti á að það freistaði sín að spila á meginalandinu. "Góður vinur minn sagði mér að þegar maður spilaði í búningi AC Milan, þá sýndi það að maður hefði náð árangri í knattspyrnu. Svona fullyrðingar fá mann til að hugsa málið," sagði Gallas.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×