Sport

Sigurður til Grindavíkur?

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Sigurður Jónsson taka við af Milan Stefán Jankovic sem þjálfari meistaraflokks Grindavíkur í knattspyrnu. Sigurður stýrði Víkingum í sumar með góðum árangri og kom liðinu upp í Landsbankadeildina þrátt fyrir harða samkeppni frá KA-mönnum. Margir bjuggust við því að Sigurður yrði áfram í Víkinni en upp úr viðræðum slitnaði milli hans og stjórnar knattspyrnudeildar Víkings að tímabilinu loknu. Sigurður mun hafa hitt forráðamenn Grindvíkinga síðustu daga og vikur. Ekki stendur til að leysa Milan Stefán undan störfum heldur að hann taki að sér yfirþjálfun yngri flokka hjá félaginu ásamt því að vera aðstoðarmaður Sigurðar. Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur vildi ekki staðfesta að hann hafi átt í viðræðum við Sigurð og sjálfur vildi Sigurður ekki láta annað hafa eftir sér en að hann væri nú að skoða sín mál.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×