Sport

Parlour fór í uppskurð

NordicPhotos/GettyImages
Ray Parlour, leikmaður Middlesbrough, hefur gengist undir aðgerð vegna hnémeiðsla sem hafa hrjáð hann síðan í september og verður líklega frá keppni fram í desember. Parlour hefur ekki leikið með liðinu síðan hann kom inn sem varamaður í tapinu fyrir Sunderland þann 25. september, en ekki er gert ráð fyrir að hann snúi aftur fyrr en í byrjun desember eða jafnvel síðar. Félagi hans Stewart Downing hjá Boro þurfti einnig að gangast undir aðgerð og hann verður ekki klár fyrr en í janúar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×