Sport

Fær Pleat stöðuhækkun?

David Pleat hefur strax verið sterklega orðaður við stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Portsmouth, eftir að Velimir Zajec sagði starfi sínu lausu eftir aðeins ellefu mánuði í starfi. Pleat hefur starfað sem sérstakur ráðgjafi hjá félaginu síðan Alain Perrin tók við stöðu knattspyrnustjóra, en nú þykir líklegt að Pleat taki stöðu Zajec og verði yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Pleat gegndi því starfi um hríð hjá Tottenham Hotspurs, en þar voru reyndar flestir guðsfegnir að losna við hann og vildu meina að hann hefði verið að leggja liðið í rúst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×