Sport

Potsdam hefur áhuga á Margréti

Þýska liðið Potsdam átti ekki í teljandi vandræðum með að vinna Val í Evrópukeppninni um helgina, en þjálfari liðsins sagðist hafa hrifist mjög af leik Margrétar Láru Viðarsdóttur og sagðist vilja fá hana til liðs við Potsdam. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. "Það er gaman af því þegar tekið er eftir því sem maður er að gera. Ég hef ekki heyrt í neinum af forráðamönnum liðsins, en ég óbeint veit ég af áhuga liðsins. Þetta er fyrst og fremst mikill heiður fyrir mig. Potsdam er eitt besta félagslið í heimi og líklega það besta í Evrópu," sagði Margrét Lára, sem segist vel geta hugsað sér að spila sem atvinnumaður í Svíþjóð eða Þýskalandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×