Sport

Chelsea skoðar Andrade

Ensku meistararnir Chelsea eru nú sagðir ætla að festa kaup á portúgalska varnarmanninum Jorge Andrade hjá Deportivo La Corunia í janúar og er talið að hann muni kosta félagið um 16 milljónir punda. Hinn hátt skrifaði varnarmaður er sagður vera efstur á óskalista Jose Mourinho og þegar þannig stendur, er þess jafnan ekki langt að bíða að eigandi liðsins opni veskið. Andrade er 27 ára gamall og talið er að hann gæti fyllt skarð William Gallas, sem er talinn hafa áhuga á að fara frá félaginu fljótlega.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×