Sport

King meiddist með landsliðinu

Varnarjaxlinn Ledley King hjá Tottenham Hotspurs gæti misst af leik liðsins gegn Everton um helgina vegna meiðsla sem hann hlaut í landsleiknum gegn Pólverjum í gær. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir aðdáendur liðsins hér heima, því stuðningsmannaklúbbur Tottenham er nú á leið til London að sjá leik Tottenham og Everton um helgina. Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham sagði á heimasíðu félagsins að um helmingslíkur væru á því að King gæti spilað leikinn og vonandi verður hann búinn að ná sér í tæka tíð fyrir íslenska aðdáendur sína sem verða á White Hart Lane á laugardaginn, en stuðningsmannaklúbbur liðsins hér heima á tíu ára afmæli um þessar mundir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×