Sport

Stjórarnir verða að aga Rooney

Sepp Blatter, forseti FIFA, liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að hinum skapheita Wayne Rooney og segir að það sé á ábyrgð knattspyrnustjóranna að halda aftur af drengnum. "Þegar menn eru alltaf í eldlínunni eins og Rooney, verða þeir að halda sér á mottunni. Ef hann er að haga sér illa, er það að mínu mati hlutverk þjálfara hans að halda aftur af honum og siða hann til ef hann er að haga sér illa. Hann verður að bera virðingu fyrir öðrum," sagði Blatter og sló loks á létta strengi. "Ég er ekki að segja að þeir eigi að lemja hann til hlýðni, en þeir kannski dangla aðeins í hann," sagði húmoristinn Blatter.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×