Sport

Enn eitt áfallið fyrir Arsenal

Arsenal hefur orðið fyrir enn einu áfallinu því nú er ljóst að Hvít-Rússinn Alexander Hleb verður frá keppni í sex til átta vikur vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í landsleik í vikunni. Fyrir eru þeir Ashley Cole, Thierry Henry, Sol Campbell og Robin van Persie allir meiddir og óvíst er að Gilberto leiki með liðinu um helgina eftir að vera nýbúinn að spila landsleik með Brasilíu. Miðvörðurinn Philippe Senderos er þó klár í slaginn um helgina og Gael Clichy mun líklega taka stöðu Ashley Cole sem vinstri bakvörður. "Ég hélt að liðið kæmi endurnært úr landsleikjunum, en þess í stað eru allir meira og minna meiddir," fussaði Arsene Wenger. "Hjá sumum er þetta reyndar aðeins spurning um nokkra daga, en hjá öðrum eru það margar vikur, eins og hjá Ashley Cole og Alexander Hleb," sagði stjórinn. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×