Sport

Fletcher og O´Shea skrifa undir

John O´Shea og Darren Fletcher skrifuðu í gær undir nýja samninga við lið Manchester United og því á aðeins einn maður í ungliðasveit liðsins eftir að framlengja samning sinn við félagið, en það er Portúgalinn Cristiano Ronaldo. Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United heldur því fram að aðeins eigi eftir að fínpússa smáatriði til að klára samninginn við Ronaldo, en hann fagnaði því að samningar væru í höfn við þá O´Shea og Fletcher og sagði þá lykilmenn framtíðarinnar í liðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×