Sport

Leikmenn Guðjóns án sjálfstrausts

Guðjón Þórðarson þjálfari enska 2. deildarliðsins Notts County veit ekki sitt  rjúkandi ráð þessa dagana en lið hans lék í gær áttunda leik sinn í röð án sigurs þegar það steinlá fyrir Rochadale, 3-0. Notts County er nú fallið niður í 14. sæti deildarinnar með 18 stig og markatalan í síðustu átta leikjum er 2-10. Guðjón hélt aukaæfingar fyrir liðið um síðustu helgi þegar frí vegna landsleikja stóð yfir en hvorki gengur né rekur hjá hans mönnum. "Við verðum að spyrja sjálfa okkur af hverju við erum hættir að gera einföldu hlutina eins og að pressa á sóknarmenn og halda í við vinnusemi mótherja okkar. Við verðum að snúa okkur aftur að grundvallaratriðunum og halda áfram því sem við vorum að gera í upphafi tímabilsins þangað til liðið fær sjálfstraustið aftur." sagði Guðjón í viðtali við Notthingham news. Guðjón vill að leikmenn sínir hætti að vorkenna sjálfum sér. "Meira en helmingur leikmanna eru að spila undir getu. Þegar menn vorkenna sjálfum sér hjálpar það engum og þess gætir einmitt meðal minna leikmanna um þessar mundir." sagði Guðjón ennfremur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×