Sport

Xavier féll á lyfjaprófi

NordicPhotos/GettyImages
Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier hjá Middlesbrough er kominn tímabundið leikbann í öllum keppnum, eftir að hafa fallið á lyfjaprófi sem hann fór í eftir leik Boro og Xanthi þann 29. september síðastliðinn. Aganefnd FIFA mun taka mál hans fyrir á næstunni, þar sem tekin verður ákvörðun um formlega refsingu, en enn hefur ekki verið gefið upp hvaða efni fundust í þvagsýni hins 32 ára gamla varnarmanns, sem áður lék með Liverpool og Everton.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×