Sport

Christianval meiddur

Hrakfallabálkurinn Philippe Christanval hjá Fulham verður frá í þrjár vikur vegna meiðsla á læri, sem hann varð fyrir eftir aðeins 35 mínútna leik með nýja liðinu sínu á mánudagskvöldið. Ferill Christanval hefur einkennst af miklum meiðslum, en engum dyljast hæfileikar þessa fyrrum landsliðsmanns Frakka. Chris Coleman dæsti þegar hann var spurður út í meiðslin og sagði engu líkara en að væri draugur í lærum leikmanna sinna. Christanval verður því ekki með í leik Fulham gegn Liverpool um helgina, þar sem Coleman ætlar að reyna að ná stigum til að koma liðinu af fallsvæðinu í ensku úrvalsdeildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×