Sport

Henry stendur við orð sín

NordicPhotos/GettyImages
Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal ætlar ekki að láta fjölmiðlafárið í kring um framtíð sína hjá félaginu hafa nein áhrif á sig og segir að hann muni ekki skoða nýjan samning fyrr en í sumar þegar tímabilinu lýkur. "Ég sagði í upphafi leiktíðar að ég vildi einbeita mér að því að spila fótbolta í vetur og að ég myndi skoða samninginn í sumar. Það hefur ekkert breyst í þessu sambandi og hlutirnir verða bara skoðaðir þegar að því kemur," sagði Henry, sem er orðaður við Barcelona þessa dagana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×