Sport

Gunnar fékk úr litlu að moða

Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Vísi nú áðan að hann hefði fengið úr litlu að moða í Evrópuleiknum gegn Hertha Berlin áðan, en lið hans Halmstad tapaði 1-0 á heimavelli fyrir þýska liðinu. "Ég var að spila einn frammi og fékk nú frekar fá tækifæri í þessum leik," sagði Gunnar Heiðar, sem spilaði allan leikinn með sænska liðinu og sagði mótherjana hafa verið erfiða. Vitað var af útsendurum nokkra enskra liða á vellinum í kvöld í þeim tilgangi að fylgjast með Gunnari Heiðari, en aðspurður sagðist hann ekkert vera að hugsa um það, heldur fyrst og fremst um að standa sig vel í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×