Sport

Beckham farinn til Spánar

David Beckham fær ekki að horfa á leik Englendinga og Pólverja af varamannabekk liðsins eins og til stóð, því hann hefur verið kallaður aftur til Spánar til að æfa með Real Madrid. Þar sem Beckham var í banni í leiknum, ákvað Sven-Göran Eriksson að leyfa honum að fara. Real Madrid á erfiðan grannaslag við Atletico Madrid á sunnudaginn og vitað er að Vanderlei Luxemburgo hefur mikinn hug á að halda liðinu á því góða skriði sem það hefur verið á undanfarið, en Beckham hefur einmitt átt stóran þátt í bættu gengi liðsins. >



Fleiri fréttir

Sjá meira


×