Sport

Sven-Göran tilkynnir byrjunarliðið

Sven-Göran Eriksson hefur tilkynnt byrjunarlið Englands sem mætir Pólverjum í kvöld, en nokkrar breytingar hafa verið gerðar á liðinu vegna meiðsla og leikbanna. Rio Ferdinand tekur sæti Sol Campbell í vörninni, Shaun Wright-Phillips tekur stöðu David Beckham á hægri kantinum, Ledley King tekur stöðu Steven Gerrard á miðjunni og þá kemur Wayne Rooney inn í framlínuna í stað Peter Crouch, en Rooney tók út leikbann gegn Austurríkismönnum á dögunum. Lið Englands. Markvörður: Paul Robinson. Varnarmenn: Rio Ferdinand, John Terry, Luke Young og Jamie Carragher. Miðjan: Frank Lampard, Joe Cole, Shaun Wright-Phillips og Ledley King. Framherjar: Wayne Rooney og Michael Owen. >



Fleiri fréttir

Sjá meira


×