Sport

Svíar komnir yfir

Svíar hafa náð forystu 2-1 gegn Íslendingum. Það var markahrókurinn Henrik Larsson sem skoraði mark sænska liðsins á 42. mínútu eftir sendingu frá Zlatan Ibrahimovic. Markið var stórkostlega útfært og Svíarnir fara á kostum þessa stundina. Zlatan Ibrahimovic átti glæsilega háa sendingu inn fyrir vörn íslenska liðsins og Larsson tók knöttinn á lofti með vinstri fæti og vippaði honum í fjærhornið fram hjá Árna Gauti Arasyni, sem átti aldrei möguleika að verja. >



Fleiri fréttir

Sjá meira


×