Sport

Eriksson ánægður

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga var afar ánægður með frammistöðu sinna manna eftir sigurinn á Pólverjum í lokaleik undankeppni HM í gær, en sigurinn tryggði enskum efsta sætið í riðlinum. "Við þurftum að rífa okkur upp eftir ósannfærandi frammistöðu að undanförnu og mér þykir liðið vera komið á rétta braut núna. Ef við getum haldið þessu leikformi og góða anda, tel ég að við verðum ekki auðsigraðir á HM," sagði Svíinn. >



Fleiri fréttir

Sjá meira


×