Viðskipti innlent

Hannes kaupir í FL Group

Hannes Smárason, forstjóri FL
Kaupir fyrir um 2,2 milljarða í FL Group.
Hannes Smárason, forstjóri FL Kaupir fyrir um 2,2 milljarða í FL Group.
Hannes Smárason, forstjóri FL Group, hefur aukið hlut sinn í FL um tæp 1,5 prósent í gegnum eignarhaldsfélagið Oddaflug. Nam fjárhæð viðskiptanna um 2.350 milljónum króna. Hlutabréf í FL hækkuðu um tæp tólf prósent á föstudaginn í síðustu viku í miklum viðskiptum. Má reikna með að Oddaflug hafi átt bróðurhlutann í þeim viðskiptum og hreyft við gengi bréfanna. Félag Hannesar er eftir sem áður stærsti hluthafinn í FL með um fimmtungshlut af heildarhlutafé. Greiningardeild KB banka gagnrýndi í gær kaup Hannesar og sagði óheppileg þar sem stutt væri í að niðurstaða uppgjörs þriðja ársfjórðungs lægi fyrir innan félagsins. Að auki gætu nú legið fyrir einhverjar viðkvæmar upplýsingar um stöðu og fyrir­ætlan varðandi skráningu Icelandair Group í Kauphöllina.- eþa





Fleiri fréttir

Sjá meira


×