Viðskipti innlent

Vill að þak verði sett á á­lagningu olíu­fé­laga

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, kallar eftir því að olíufélögin lækki álagningu sína og að stjórnvöld stígi sömuleiðis inn með því að lækka virðisaukaskatt á ný. Bensínlítri kostar nú 253 krónur á höfuðborgarsvæðinu en víða á landsbyggðinni allt að 274 krónur samkvæmt vef Gasvaktarinnar. Lítri af dísilolíu kostar nú víðast hvar um 300 krónur.

Viðskipti innlent

Tæp­lega þrjá­tíu sagt upp

Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðará við Rauðarárstíg í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á hótelinu næstu mánuði og stendur til að opna undir nýju merki á næsta ári.

Viðskipti innlent

Á­kveða í kvöld hvort kjara­samningum verði sagt upp

Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA.

Viðskipti innlent

Klíníkin sótti 300 milljónir króna

Klíníkin Ármúla lauk í september 300 milljóna króna hlutafjáraukningu og náðist þar með markmið aukningarinnar að fullu. Auk þess seldi félagið eigin hluti fyrir um 23 milljónir króna til 13 starfsmanna, sem eignuðust samtals tveggja prósenta hlut í félaginu. Fyrr á árinu bættust jafnframt níu starfandi læknar í hluthafahópinn.

Viðskipti innlent

Enn eitt gjald­þrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni

Skiptum er lokið á þrotabúi Veislunnar ehf., sem rak samnefnda veisluþjónustu á Seltjarnarnesi um árabil. Ekki ein einasta króna fékkst upp í kröfur, sem námu tæpum 216 milljónum króna. Ekki er langt síðan greint var frá mörg hundruð milljóna króna gjaldþrotum félaga í eigu Helga Magnúsar Hermannssonar, sem einnig átti Veisluna.

Viðskipti innlent

Kaupir Mal­biks­stöðina á fimm milljarða

Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Seljandi er félag í eigu Vilhjálms Þórs Matthíassonar. Heildarvirði Malbikstöðvarinnar í viðskiptunum er 5.080 milljónir króna.

Viðskipti innlent

Tuttugu sagt upp í fisk­vinnslu í Reykja­nes­bæ

Tuttugu starfsmönnum í fiskvinnslu Premium of Iceland í Reykjanesbæ hefur verið sagt upp. Félagið segir óvissu um að kenna vegna aðgerða heilbrigðisnefndar Suðurnesja, 38 hafi starfað hjá fiskvinnslunni í upphafi árs en þeim hafi fækkað jafnt og þétt. Félagið segir málið varða fleiri fyrirtæki og segir hundruð starfa undir.

Viðskipti innlent

„Hlutir sem við vorum ekki sam­mála um“

Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar koma í kjölfar ágreinings milli hans og stjórnar Landsvirkjunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann og stjórnina ekki ávallt hafa verið sammála um allt en hún þakkar Herði fyrir glæsilegan sautján ára feril hjá félaginu.

Viðskipti innlent

Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnar­ráðið

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu en hann mætti á fund í stjórnarráðinu um eittleytið í dag.

Viðskipti innlent

Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG

Magnús G. Erlendsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG. Hann hóf störf hjá ráðgjafarsviði KPMG árið 2005 og varð hluthafi árið 2014 en tekur hann við af Svanbirni Thoroddsen sem lætur nú af störfum hjá KPMG eftir sautján ára feril hjá félaginu

Viðskipti innlent

Spá ó­breyttum vöxtum

Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár.

Viðskipti innlent

Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020

Hlutabréfavelta í Kauphöllinni var sú minnsta í sex ár í ágúst og nam 29 milljörðum króna. Í ágúst 2020, á fyrsta ári faraldursins, var hún 28,8 milljarðar. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir háa vexti helstu skýringuna á lítilli veltu nú.

Viðskipti innlent