Viðskipti innlent

181 starfs­manni sagt upp í sex hóp­upp­sögnum

Atli Ísleifsson skrifar
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar. Vísir/Vilhelm

Alls bárust Vinnumálastofnun sex tilkynningar um hópuppsagnir í nýliðnum september, þar sem 181 starfsmanni var sagt upp störfum.

Í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar segir að flestar uppsagnirnar hafi verið á sviði hugbúnaðar og upplýsingatækni, alls 80 starfsmenn. Er þar líklega vísað í uppsagnir hjá Netapp. 

„Auk þess var 68 starfsmönnum í byggingariðnaði sagt upp störfum, 20 starfsmönnum í fiskvinnslu og 13 starfsmönnum í íþróttastarfsemi.

Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu október 2026 til mars 2027,“ segir í tilkynningunni.

Síðustu daga hefur meðal annars verið greint frá uppsögnum hjá Netapp, Arion banka og Premium of Iceland.


Tengdar fréttir

Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir hápunkti atvinnuleysis ekki hafa verið náð en staðan á vinnumarkaði komi þó ekki á óvart. Árstíðabundin sveifla sé meiri núna en síðustu ár en fjöldi þeirra sem sagt hafi verið upp verði ekki ljós fyrr en eftir mánaðamót.

Ekki sjái fyrir endann á upp­sögnum

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir hápunkti atvinnuleysis ekki hafa verið náð en staðan á vinnumarkaði komi þó ekki á óvart. Árstíðabundin sveifla sé meiri núna en síðustu ár en fjöldi þeirra sem sagt hafi verið upp verði ekki ljós fyrr en eftir mánaðamót.

Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ

Tuttugu starfsmönnum í fiskvinnslu Premium of Iceland í Reykjanesbæ hefur verið sagt upp. Félagið segir óvissu um að kenna vegna aðgerða heilbrigðisnefndar Suðurnesja, 38 hafi starfað hjá fiskvinnslunni í upphafi árs en þeim hafi fækkað jafnt og þétt. Félagið segir málið varða fleiri fyrirtæki og segir hundruð starfa undir.

Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV

Rúmlega tuttugu var sagt upp störfum í hópuppsögn hjá Íslenskum aðalverktökum (ÍAV) í mánuðinum, að sögn forstjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi staðið í endurskipulagningu reksturs síðustu misseri.

Uppsagnir í Arion banka

Um tuttugu starfsmenn munu hætta störfum hjá Arion banka í septembermánuði, flestir í dag. Þetta staðfestir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka í samtali við fréttastofu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×