Viðskipti innlent

ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir

Árni Sæberg skrifar
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir er forstjóri ÁTVR.
Þorgerður Kristín Þráinsdóttir er forstjóri ÁTVR. Vísir

Sviðum ÁTVR verður fækkað um eitt og staða eins framkvæmdastjóra lögð niður, auk þess sem stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð verður fækkað um tæplega sex, í hagræðingaraðgerðum. Með þeim er áætlað að spara um 150 milljónir króna á ári.

Í tilkynningu þess efnis segir að ÁTVR hafi undanfarið unnið að skipulagsbreytingum í þeim tilgangi að auka hagkvæmni í rekstri, bregðast við minnkandi sölu og laga skipulag og ábyrgðarsvið að nýrri stefnu fyrirtækisins. Breytingarnar séu jafnframt liður í að mæta kröfu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um hagræðingu í rekstri.

Með breytingunum verði sviðum fyrirtækisins fækkað og ein staða framkvæmdastjóra lögð niður. Jafnframt verði stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð fækkað um tæplega sex og ekki verði ráðið í allar lausar stöður næstu misserin.

Áætlað sé að skipulagsbreytingarnar, ásamt öðrum hagræðingaraðgerðum, skili um 150 milljóna króna árlegum sparnaði þegar þær hafa komið að fullu til framkvæmda.

ÁTVR hafi frá árinu 2020 unnið markvisst að því að hagræða í rekstri og laga starfsemina að breyttum aðstæðum. Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar hafi stöðugildum fækkað úr 356 í 292, eða um 18 prósent á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×