Spá óbreyttum vöxtum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. september 2026 14:56 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er einn þeirra sem tekur ákvörðun um hvort að breytingar verði gerðar á stýrivöxtum. Vísir/Vilhelm Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár.
Þrátt fyrir aukna verðbólgu, sem er núna 5,9 prósent, gerir greiningardeildin ráð fyrir óbreyttum vöxtum þar sem aukningin skýrist ekki af aukinni innlendri eftirspurn. Nefndin hafi hækkað vexti á síðustu þremur fundum sínum um 0,25 prósentustig í einu en hafi tekið fram við síðustu hækkun að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. „Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestins í kjarasamningum,“ segir í tilkynningu greingardeildarinnar. Muni lýsa yfir áhyggjum Frá því að síðasta ákvörðun nefndarinnar var tekin hefur verðbólgan hækkað um 0,6 prósentustig en rekja má aukninguna að mestu leyti til hækkunar á eldsneyti. Í byrjun september var tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti felld niður auk þess sem eldsneytisverð hefur hækkað á heimsmarkaði. „Ef engar breytingar hefðu orðið á virðisaukaskattinum á eldsneyti hefði verðbólga mælst óbreytt á milli mánaða í september,“ segir í tilkynningunni. Þá muni gjaldhækkanir í fjárlagafrumvarpi Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, sem hann kynnti í ágúst hafa átt þátt í því að ýta verðbólguvæntingum aftur upp. Greiningardeildin gerir því ráð fyrir því að nefndin muni lýsa yfir áhyggjum af boðuðum gjaldahækkunum en það muni ekki hafa áhrif á vaxtaákvörðunina sjálfa. „Við síðustu ákvörðun mátti greina mun mildari tón hjá nefndinni en áður. Nefndin virtist telja að annarrar umferðar áhrif verðhækkananna, sem einkum mátti rekja til hækkana á opinberum gjöldum og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndunum væru minni en upphaflega var óttast,“ segir í tilkynningunni.
Landsbankinn Verðlag Efnahagsmál Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Sjá meira