Seðlabankinn „
1 2 3 4 5 6 … 50 ›
„Hverjum manni augljóst“ að umgjörð bankakerfisins skaðar samkeppnishæfni Það ætti að vera „hverjum manni augljóst“ að umgjörðin um fjármálakerfið, sem felst í sértækum sköttum og gullhúðun regluverks, dregur úr samkeppnishæfni og eykur kostnað alls íslensks atvinnulífs, ekki aðeins fjármálageirans, að sögn stjórnarformanns Kviku sem hvetur stjórnvöld til að ráðast í úrbætur. Hann segir að með fjármununum sem fást við söluna TM, sem var samþykkt að greiða út að stórum hluta í arð til hluthafa á aðalfundi í gær, sé tekið mikilvægt skref til að ná meðal annars markmiðum um að aukar vaxtatekjur bankans. Innherji 27.3.2025 15:41
Krónan styrkist hratt eftir að lífeyrissjóðir og spákaupmenn drógu sig í hlé Ekkert lát er á gengisstyrkingu krónunnar, sem er núna í sínu hæsta gildi gagnvart evrunni frá því um haustið 2023, en sú þróun má einkum rekja til þess að gjaldeyriskaup lífeyrissjóða hafa verið hverfandi frá áramótum og framvirkar stöður með krónunni ekki minni um langt árabil. Mikil hækkun á gengi krónunnar að undanförnu kemur á sama tíma og blikur eru á lofti hjá sumum af helstu útflutningsgreinum landsins og útlit fyrir nokkurn viðskiptahalla á komandi árum. Innherji 26.3.2025 17:17
Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Hætta er á að áhrif tollastríðs Bandaríkjanna og annarra ríkja nái til Íslands með beinum eða óbeinum hætti. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans segir mikla óvissu í alþjóðamálum geta reynt á viðnámsþrótt þjóðarbúsins. Seðlabankastjóri segir mikinn viðnámsþrótt í efnahagskerfinu en tollastríð gæti þó haft neikvæð áhrif á lífskjör almennings. Viðskipti innlent 26.3.2025 12:30
Afturhvarf til verndarstefnu gæti reynt á viðnámsþrótt þjóðarbúsins og bankanna Seðlabankinn varar við því að verndarstefna í alþjóðaviðskiptum muni meðal annars leiða til truflana á framboðskeðjum, sem geti haft neikvæð áhrif á fjárfestingu og efnahagsumsvif, og sömuleiðis valdið niðursveiflu á fjármálamörkuðum, að mati fjármálastöðugaleikanefndar bankans. Líklegt er að áhrifanna af slíkri sviðsmynd myndi gæta hér á landi, beint eða óbeint, og Seðlabankinn undirstrikar því mikilvægi þess að huga að viðnámsþrótti þjóðarbúsins. Innherji 26.3.2025 09:14
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fulltrúar fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans munu sitja fyrir svörum á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30 og ræða yfirlýsingu nefndarinnar sem birt var í morgun. Viðskipti innlent 26.3.2025 09:01
Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað Arnald Sölva Kristjánsson í fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands til fimm ára frá 5. mars 2025 í stað Guðmundar Kristjáns Tómassonar sem setið hafði í nefndinni í fimm ár. Viðskipti innlent 26.3.2025 08:43
Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Hætta er á að áhrif tollastríðs Bandaríkjanna og annarra ríkja nái til Íslands með beinum eða óbeinum hætti. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans segir mikla óvissu í alþjóðamálum geta reynt á viðnámsþrótt þjóðarbúsins. Viðskipti innlent 26.3.2025 08:39
Vogunarsjóðurinn Algildi selur allar hlutabréfastöður og hættir starfsemi Eftir afar krefjandi aðstæður á innlendum hlutabréfamarkaði nánast samfellt undanfarin þrjú ár hefur vogunarsjóðurinn Algildi, sem fjárfestir einkum í hlutabréfum, losað um allar skráðar verðbréfastöður sínar og tilkynnt sjóðsfélögum að hann sé hættur starfsemi. Algildi var um tíma á meðal umsvifameiri vogunarsjóða á markaði en hefur minnkað mikið að stærð á allra síðustu árum samtímis umtalsverði gengislækkun. Innherji 22.3.2025 13:28
Arion lækkar vexti Arion Banki hefur tilkynnt um breytingar á inn- og útlánsvöxtum bankans í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans á miðvikudaginn. Breytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. mars næstkomandi. Viðskipti innlent 21.3.2025 18:14
Tilefni til að skoða hvort „rétt jafnvægi“ hafi verið markað í kröfum á bankakerfið Nú þegar bráðum verða tveir áratugir liðnir frá falli bankanna þá er ástæða til þess að nota þau tímamót til að leggja mat á hvort „rétt jafnvægi“ hafi verið markað þegar kemur að sköttum og kröfum á fjármálakerfið, að mati formanns bankaráðs Landsbankans, enda fylgir þeim mikill kostnaður og hefur áhrif á samkeppnishæfnina. Hann segir bankann vera í „sóknarhug,“ meðal annars eftir kaupin á TM, en ljóst sé hins vegar að með aukinni tækni er samkeppnin að vaxa, bæði frá innlendum og erlendum félögum. Innherji 21.3.2025 12:04
Fjórða stýrivaxtalækkunin og flatkökur aftur í boði Seðlabankastjóri býst við að fjármálastofnanir lækki vexti í kjölfar 0,25 prósenta stýrivaxtalækkunar í morgun. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur að óverðtryggðir vextir muni lækka meira en verðtryggðir vextir vegna hárra raunvaxta. Innlent 19.3.2025 22:00
Indó ríður aftur á vaðið Í kjölfar vaxtalækkunar Seðlabanka Íslands í dag hefur Indó sparisjóður ákveðið að lækka vexti á inn- og útlánum sínum. Önnur fjármálafyrirtæki hafa ekki greint frá áformum sínum um vexti. Neytendur 19.3.2025 13:51
Vaxtalækkun í takt við væntingar en nefndin telur enn þörf á „þéttu“ aðhaldi Samstaða var á meðal nefndarmanna peningastefnunefndar Seðlabankans að lækka vexti um 25 punkta, sem var í samræmi við væntingar greinenda og markaðsaðila, en samtímis háu raunvaxtastigi er verðbólgan að hjaðna á breiðum grunni og útlit fyrir að hún minnki áfram á næstu mánuðum. Nefndin undirstrikar hins vegar sem fyrr að áfram verði þörf á „þéttu taumhaldi peningastefnunnar.“ Innherji 19.3.2025 09:08
Bein útsending: Rökstyðja vaxtaákvörðunina Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands greindi í morgun frá ákvörðun sinni um að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr því að vera 8 prósent niður í 7,75 prósent. Viðskipti innlent 19.3.2025 09:01
Vaxtalækkunarferli Seðlabankans heldur áfram Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 25 punkta og fara þeir því úr því að vera 8,0 prósent í 7,75 prósent. Viðskipti innlent 19.3.2025 08:31
Tollastríð ætti að minnka efnahagsumsvif og styðja við vaxtalækkanir Fjárfestum er ekki stætt á öðru en að taka hótanir Donalds Trump um tolla á helstu viðskiptalönd Bandaríkjanna alvarlega, fremur en að telja að um sé að ræða samningatækni, og ljóst að verði af tollastríði mun það hafa „ótvíræð“ neikvæð áhrif á efnahagsumsvifin hér á landi, að mati aðalhagfræðings Kviku. Hann telur frekar líkur standa til þess að tollastríð eigi eftir að draga úr verðbólgu og ætti af þeim sökum að styðja við vaxtalækkunarferli Seðlabankans. Innherji 19.3.2025 06:02
Raunarðsemin umtalsvert lægri en hjá öðrum stórum norrænum bönkum Að teknu tilliti til boðaðrar arðgreiðslu síðar í vikunni þá nema uppsafnaðar útgreiðslur til hluthafa Arion á undanförnum fjórum árum – bæði í formi arðs og kaupa á eigin bréfum – samtals um 124 milljörðum, eða sem nemur vel yfir helmingi af núverandi markaðsvirði bankans. Þrátt fyrir að skila betri afkomu en hinir stóru bankarnir á Íslandi þá var raunarðsemi Arion á árinu 2024 umtalsvert lægri borið saman við aðra kerfislega mikilvæga banka á Norðurlöndunum. Innherji 17.3.2025 16:25
Taki varkárt skref með 25 punkta lækkun í skugga óvissa og yfirvofandi tollastríðs Nánast óbreytt raunvaxtaaðhald frá síðasta fundi þýðir að peningastefnunefndin mun aðeins hafa svigrúm til að lækka vextina um 25 punkta í þetta sinn, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í könnun Innherja, þar sem myndarleg hjöðnun verðbólgu mun vega þyngra en óvænt hækkun verðbólguvæntinga heimila. Góðar líkur eru á að vaxtalækkunarferlið haldi áfram síðar á árinu, einkum ef peningastefnunefnd fer að hefja hægfara losun á aðhaldinu, og mjög verður horft til skilaboða Seðlabankans í vikunni hvaða áhrif stóraukin óvissa í alþjóðamálum og yfirvofandi tollastríð kunni að hafa á efnahagsumsvifin. Innherji 17.3.2025 12:03
Spá sömuleiðis 25 punkta lækkun í næstu viku Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 25 punkta í næstu viku. Nefndin kemur saman og kynnir vaxtaákvörðun sína næstkomandi miðvikudag. Viðskipti innlent 13.3.2025 11:20
Spá því að stýrivextir verði lækkaðir um 25 punkta Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir um 0,25 prósentur við næstu ákvörðun peningastefnunefndar 19. mars. Telur hún að vaxtalækkunarferli Seðlabankans muni skila stýrivöxtum í 6,5 prósent í árslok 2025. Viðskipti innlent 12.3.2025 10:36
Viðbúinn hærra vöruverði og færri ferðamönnum vegna tolla Mögulegt tollastríð gæti haft umtalsverð áhrif á íslenskan almennig að mati seðlabankastjóra. Vöruverð gæti hækkað og ferðamenn síður skilað sér til landsins. Seðlabankinn vinnur að greiningu á líklegum áhrifum. Viðskipti innlent 11.3.2025 12:14
Bein útsending: Ásgeir og Þórarinn ræða skýrslur peningastefnunefndar Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund í dag þar sem fjallað verður um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024. Innlent 11.3.2025 08:24
Ekki meira innstreymi í ríkisbréf í eitt ár með auknum kaupum erlendra sjóða Eftir nokkuð lítil umsvif erlendra skuldabréfasjóða í kaupum á íslenskum ríkisverðbréfum að undanförnu þá jukust þau verulega í febrúar með fjármagnsinnflæði upp á meira en átta milljarða. Fjárfesting erlendra sjóða hefur ekki verið meiri í einum mánuði í eitt ár, sem átti sinn þátt í að ýta undir óvænta gengisstyrkingu krónunnar, og kemur á sama tíma og langtímavaxtamunur við útlönd hefur heldur farið lækkandi. Innherji 10.3.2025 21:31
Frá Seðlabankanum í sýndarheima CCP CCP hefur ráðið Stefán Þórarinsson, hagfræðing, frá Seðlabankanum til að vinna við þróun hagkerfa í sýndarheimum leikjafyrirtækisins. Stefán mun sérstaklega vinna við EVR Frontier, nýjasta leik fyrirtækisins þar sem nýst er við bálkakeðjutækni. Viðskipti innlent 7.3.2025 16:26
Verðlagning hagnaðar íslenskra hlutabréfa lækkar Ólíkt leitni CAPE fyrir Úrvalsvísitöluna til lækkunar, hefur hlutfall virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði fyrir bandarísku hlutabréfavísitöluna S&P 500 haldið áfram að hækka og stendur nú nærri sögulega háum gildum. Umræðan 3.3.2025 09:52
Fossar juku hlutaféð um 600 milljónir eftir hækkun á eiginfjárkröfu bankans Hlutafé Fossa var hækkað í tveimur áföngum með skömmu millibili undir lok síðasta árs að fjárhæð samtals sex hundruð milljónir en aukningin, sem er sögð til að styðja við áframhaldandi vöxt, var meðal annars gerð til uppfylla nýja lágmarks eiginfjárkröfu af hálfu fjármálaeftirlitsins. Efnahagsreikningur Fossa nærri tvöfaldaðist að stærð á liðnu ári á meðan hreinar rekstrartekjur jukust um sextíu prósent en fjárfestingabankinn skilaði hins vegar lítillegu tapi fyrir skatt. Innherji 27.2.2025 14:57
Yfir 200 milljarða innlánahengja gæti leitað á eignamarkað með lægri vöxtum Frá því að raunstýrivextir urðu að nýju jákvæðir fyrir tveimur árum hafa innlán heimilanna aukist um 460 milljarða, mun meira en mætti vænta miðað við leitni vaxtar í hlutfalli við landsframleiðslu, og stóra spurningin er hvert „innlánahengjan“ leitar þegar vextir fara lækkandi, að sögn aðalhagfræðings Kviku. Hann telur sennilegt að áhrifin sjáist fyrst á eignamörkuðum með auknum hvata eignameiri fólks til að ráðstafa lausu fé í áhættusamari fjárfestingar en þegar fram í sækir gæti þessi mikli „umfram“ sparnaður takmarkað svigrúm Seðlabankans til lækkunar á raunvaxtaaðhaldinu. Innherji 26.2.2025 14:38
Traustið við frostmark Talsverðar breytingar eru milli ára á trausti Íslendinga til stofnana. Traust til borgarstjórnar hefur ekki verið jafnlítið síðan 2008. Traust til þjóðkirkjunnar hefur aukist mest milli ára meðan traust til embætti forseta Íslands tekur stærstu dýfuna. Innlent 20.2.2025 09:39
Séríslenskar kvaðir á bankakerfið eru komnar „út fyrir öll velsæmismörk“ Það „blasir við“ að þörf er á meiri hagræðingu á fjármálamarkaði enda eru séríslenskar kvaðir, sem kosta heimili og fyrirtæki árlega yfir fimmtíu milljarða, komnar „út fyrir öll velsæmismörk“ og skaða samkeppnisstöðu íslenskra banka gagnvart erlendum keppinautum, fullyrðir forstjóri Stoða, stærsti einkafjárfestirinn í Arion og Kviku. Hann brýnir jafnframt nýja ríkisstjórn til að setja sérstök lög um nokkur lykilverkefni í virkjunarframkvæmdum til að vinna hratt upp orkuskortinn eftir langvarandi framtaksleysi í þeim efnum, að öðrum kosti muni innistæðulítil kaupamáttaraukning síðustu ára að lokum leiðréttast með gengisfalli og aukinni verðbólgu. Innherji 17.2.2025 07:02
Fátt nýtt í skilaboðum bankans og ekki ástæðu til að endurmeta vaxtahorfurnar Þrátt fyrir varfærinn tón í skilaboðum Seðlabankans þá hefur ekki orðið nein breyting á meginstefnu peningastefnunefndar um lækkun vaxta í takt við verðbólgu og verðbólguvæntingar, að sögn aðalhagfræðings Kviku, en miðað við þróttinn í hagkerfinu er samt ósennilegt að lokavextir lækkunarferlisins fari nálægt þeim gildum sem voru fyrir faraldur. Launakostnaður er að hækka talsvert umfram það sem samræmis verðstöðugleika og seðlabankastjóri segir að áhættan á vinnumarkaði, þar sem enn er ósamið við kennara, sé upp á við. Innherji 9.2.2025 12:40