Viðskipti innlent

Bein út­sending: Mót­vindur – fundur um ferða­þjónustu í Suður­kjör­dæmi

Atli Ísleifsson skrifar
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, er einn þeirra sem mun flytja erindi.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, er einn þeirra sem mun flytja erindi. Vísir/Arnar

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness standa fyrir fundi um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi í dag.

Fundurinn fer fram á Hótel Selfossi á Selfossi og stendur á milli klukkan 17 og 19 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar segir að fundurinn fari fram á mikilvægum tímapunkti.

„Á Alþingi liggja nú fyrir stór mál sem snerta ferðaþjónustuna með beinum hætti og geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði greinarinnar og atvinnulíf í Suðurkjördæmi. Þar má meðal annars nefna skattahækkanir á baðlón, krónutöluhækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi ásamt frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.

Þetta eru ekki aðeins málefni ferðaþjónustunnar. Þau snúa að atvinnu, fjárfestingu, samkeppnishæfni og byggðaþróun í Suðurkjördæmi og því er mikilvægt að þau séu rædd af fulltrúum kjördæmisins við þá sem starfa í greininni og þekkja stöðuna af eigin raun.

Á fundinum mun Deloitte kynna niðurstöður á greiningu sem fyrirtækið hefur unnið fyrir SAF um áætlaðar skatta- og gjaldahækkanir á ferðaþjónustu sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá verða flutt erindi frá SAF og fulltrúum sveitarstjórnarmála og ferðaþjónustu í kjördæminu.

Erindi flytja:

  • Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte
  • Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi Konvin Hotel
  • Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Fundarstjórar: Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands

Seinni hluti fundarins verður vettvangur beinna samtala við þingmenn Suðurkjördæmis um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni.

Þátttakendur í pallborðsumræðum:

  • Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks
  • Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
  • Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins
  • Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar
  • Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins
  • Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingar

Umræðustjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF






Fleiri fréttir

Sjá meira


×