Viðskipti innlent

Loðnumælingar tölu­vert undir væntingum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Upphafsráðgjöf samkvæmt þeim var 358.044 tonn sem nýja ráðgjöfin kemur í staðinn fyrir.
Upphafsráðgjöf samkvæmt þeim var 358.044 tonn sem nýja ráðgjöfin kemur í staðinn fyrir. Vísir/Sigurjón

Uppfærð veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Náttúrustofnunar Grænlands (GINR) fyrir komandi loðnuvertíð er upp á ríflega 105 þúsund tonn. Í tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun kemur fram að ráðgjöfin byggi á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum í september síðastliðnum sem reyndust töluvert undir væntingum.

Vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki yfir allt útbreiðslusvæði stofnsins og því má gera ráð fyrir að stærð hans sé vanmetin.

Rannsóknaskipin Tarajoq og Árni Friðriksson voru við loðnumælingar á tímabilinu 28. ágúst til 26. september við austurströnd Grænlands og norður af Íslandi.

„Enda þótt tækist að fylgja áætlun á mestum hluta rannsóknasvæðisins og yfirferð þar talin fullnægjandi, náðist ekki að fara yfir nyrsta hluta svæðisins. Árni Friðriksson lenti í miklum og tíðum óviðrum í leiðangrinum og sérstaklega nyrst á svæðinu. Afleiðingarnar urðu að nyrst þurfti að fara í grófari yfirferð til að ná mælingu milli óveðra og hafís hamlaði að lokum frekari mælingum. Á suðurhluta svæðisins var nánast eingöngu ungloðna en fullorðna loðnan var norðar og allt norður að 71°N þar sem Árni Friðriksson þurfti frá að hverfa vegna óveðurs og hafíss,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknarstofnunar um mælingarnar.

Leiðarlínur Tarajoq og Árna Friðrikssonar haustið 2026 (gráar línur), þéttleiki loðnu (bleikar línur þvert á leiðarlínur) og útbreiðsla hafís 23. september (litaskali).Hafrannsóknarstofnun

Allt annað en upphafsráðgjöfin

Niðurstöður mælinganna sýna svo að stærð veiðistofnsins, sem verður uppistaða veiðanna á komandi vertíð, mældist tæp 560 þúsund tonn.

Að teknu tilliti til samþykktrar aflareglu og metins afráns gefi sú mæling ráðgjöf upp á 105.773 tonn samkvæmt tilkynningu en þar segir einnig að horfa verði til þess að aflareglan kveði á um að ráðgjöf byggð á haustmælingu á veiðistofni sé 2/3 af útreiknuðu aflamarki, sem var 158.660 tonn, og gefi fyrirheit um hvað þessi mæling gefur í afla.

Í tilkynningu er tekið fram að þessi mæling á stærð veiðistofnsins sé töluvert undir væntingum byggðum á ungloðnumælingum haustið 2025. Upphafsráðgjöf samkvæmt þeim var 358.044 tonn sem nýja ráðgjöfin kemur í staðinn fyrir.

„Munurinn á niðurstöðum þessara mælinga er talinn, allavega að hluta til, stafa af því að ekki náðist yfir allt útbreiðslusvæði loðnunnar í nýafstöðnum leiðangri nyrst og því sé um að ræða vanmat á stærð veiðistofnsins,“ segir í tilkynningunni.

Ekki tekin ákvörðun um lokamælingu

Þar segir einnig að niðurstöður mælinga á magni ungloðnu (ókynþroska) hafi verið upp á 65,9 milljarða einstaklinga og upphafsráðgjöf fyrir fiskveiðiárið 2027/28 verði því væntanlega 83.283 tonn samkvæmt aflareglu.

Að lokum segir að lokaráðgjöf fyrir yfirstandandi vertíð, sem komi þá í stað ráðgjafar upp á 105 þúsund tonn, verði gefin að loknum vetrarmælingum á nýju ári. Ekki hafa verið teknar lokaákvarðanir samkvæmt tilkynningu um fyrirkomulag þeirra mælinga, en niðurstöður síðustu mælinga muni hafa áhrif þar á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×