Viðskipti innlent

Karl Wernersson opnar sig

Árni Sæberg skrifar
Karl Wernersson boðar til fundar á morgun.
Karl Wernersson boðar til fundar á morgun.

Karl Wernersson hefur boðað vini sína og vandamenn á fund á morgun. Þar mun Karl fara yfir sögu sína frá því að fjárfestingarfélagið Milestone var úrskurðað gjaldþrota árið 2009, fyrir 17 árum síðan. Fjölmiðlum er einnig boðið á fundinn.

Karl var einn umsvifamesti kaupsýslumaður landsins á árunum fyrir bankahrun árið 2008, meðal annars í gegnum félagið Milestone sem hann átti ásamt systkinum sínum. Milestone átti meðal annars tryggingafélagið Sjóvá og stóð í fjárfestingum erlendis.

Gjaldþrot Milestone árið 2009 leiddi af sér umfangsmikil dómsmál og eitt þeirra endaði með því að fimm eigendur og stjórnendur hlutu þunga fangelsisdóma. Þá voru þeir einnig dæmdir til að greiða þrotabúi Milestone milljarða í skaðabætur. Samtals hlutu sakborningar í málinu um 10 ára fangelsisdóma. Þar af hlaut Karl þriggja og hálfs árs dóm. Hann afplánaði 640 daga af þeirri refsingu, þar af 250 daga í fangelsi.

Árið 2021 viðurkenndi ríkið að fimm Íslendingar, þar á meðal Karl og tveir aðrir sem hlutu dóma vegna Milestone, hefðu ekki fengið réttláta málsmeðferð varðandi dóma sem þeir fengu í kjölfar hrunsins. 

Samkvæmt heimildum Vísis hyggst Karl segja vinum, vandamönnum og fjölmiðlum frá reynslu sinni af íslensku réttarkerfi, upplifun sinni og fjölskyldu hans af því að hafa setið saklaus í fangelsi og hvernig afleiðingar refsidómsins sem búið er að afmá haldi áfram að hafa afleiðingar í dag, 17 árum eftir gjaldþrot Milestone, á fundinum á morgun.


Tengdar fréttir

Mannréttindadómstóllinn að gefa Íslandi falleinkunn

Lögmaður fyrrverandi bankastjóra Landsbankans segir kerfið hafa fengið falleinkunn hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Íslenska ríkið hefur viðurkennt að fimm manns hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð í málaferlum eftir hrun bankakerfisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×