Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Bjarki Sigurðsson skrifar 1. október 2026 08:01 Helgi Vilhjálmsson er eigandi Góu. Vísir/MHH Allar fjórar stærstu sælgætisgerðir landsins skiluðu hagnaði 2025. Aðeins þær stærstu, Nói Síríus og Góa-Linda, greiða hluthöfum arð þetta árið.
Nói Síríus Tekjurnar eru langmestar hjá Nóa Síríus, sem var á síðasta ári að fullu í eigu norska fyrirtækisins Orkla. Á þessu ári eignaðist sjóður Alfa Framtaks ehf. fyrirtækið. Tekjurnar námu tæpum 5,5 milljörðum króna á síðasta ári og hækkuðu örlítið milli ára, um tæp 2,4 prósent. Hagnaður ársins nam 421 milljón króna, sem gerir hagnaðarhlutfall upp á rúm 7,7 prósent. Árið áður var hagnaðurinn 246,5 milljónir króna. Launakostnaður fyrirtækisins dróst saman milli ára og fækkaði stöðugildum um fimmtán. Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 250 milljónir króna til hluthafa í arðgreiðslur. Nói Síríus er aftur í innlendri eigu. Góa-Linda Rekstur Góu gekk ekki jafn vel og hjá Nóa þrátt fyrir aukna sölu. Tekjur félagsins námu tæpum 2,4 milljörðum króna og jukust um 32 prósent. Hagnaðurinn dróst þó saman og var tæpar 165 milljónir samanborið við 183 milljónir árið áður. Störfum fjölgaði úr 47 í sextíu á árinu. Árið 2024 greiddi félagið hluthöfum 61 milljón króna í arð og 130 milljónir árið áður. Í ár er lagt til að greiðslan nemi 140 milljónum króna. Félagið er í 94 prósent eigu Helga Vilhjálmssonar, oftast kenndur við Góu. Kristín, Ingunn og Rut, dætur Helga, eiga allar tvö prósent á haus. Góa var stofnuð 1968. Freyja Í ársreikningi Freyju sælgætisgerðar segir að reksturinn hafi verið þungur 2025. Rekstrartekjur námu tæplega 1,9 milljörðum króna og hagnaður var 73 milljónir. Félagið er í meirihlutaeigu Mata-systkinanna en stjórn félagsins ákvað að greiða hluthöfum ekki arð þetta árið. Starfsmenn voru 55 í fyrra samanborið við 53 árið áður. Pétur Thor Gunnarsson er framkvæmdastjóri Freyju.Freyja Kólus Kólus er minnsta sælgætisgerðin af þessum fjórum og námu tekjur félagsins 826 milljónum í fyrra og jukust um tæp tuttugu prósent. Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist og nam 85 milljónum króna sem gerir hagnaðarhlutfall upp á 10,3 prósent. Jón S. Kjartansson og Fjarðarás 10 ehf. eiga félagið til helminga. Fjarðarás 10 er að fullu í eigu Lilju Þorgeirsdóttur. Þau greiða sér ekki arð þetta árið. Þristur er líklegast það sælgæti sem flestir gæða sér á frá Kólus.
Sælgæti Uppgjör og ársreikningar Matvælaframleiðsla Mest lesið Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Sjá meira