Þegar Guð reddaði mér 15. mars 2007 00:01 Nú er hátíð í bæ hjá prestum og verslunarfólki. Akkorð. Enda heill árgangur á leið í ,,fullorðinna manna tölu". Þrátt fyrir áfangann munu krakkarnir hanga lengi enn á Hótel Mömmu, vel nærðir og ánægðir með fermingaruppskeruna, að lágmarki 5000 kall á hvern ættingja, en mun meira frá náskyldum. Öll menningarsvæði eru með manndómsvígslur. Íslenska fermingaveislan fölnar í samanburði við það sem sum samfélög leggja á krakkana: margra daga leyndardómsfullar serímóníur með kvalafullum líkamsskreytingum og mannraunum. Hvert samfélag speglar sig í manndómsvígslunni og því er augljóst af hverju við leggjum svona mikið upp úr gjöfunum. Við vitum sem er að peningar eru mátturinn og dýrðin að eilífu amen og eins gott að kenna krökkunum þetta strax. Aumingja fermingakrakkarnir eru á versta hugsanlega aldri til að standa í þessu. Mitt á milli barns og fullorðins, óöruggar hálfverur. Ég var að minnsta kosti með í maganum vikum saman fyrir mína fermingarveislu. Að allt þetta fólk ætlaði að koma bara út af mér - það var hræðilega ógnvænleg hugmynd að ég ætti að vera miðpunktur athyglinnar. Ég hefði feginn skipt á veislunni og vikulangri útlegð í Heiðmörk, þar sem ég hefði getað reikað um á lindarskýlu og fundið mitt andlega sjálf í leiðslu af berserkjasveppum. En það var ekki aftur snúið. Kvöldið fyrir ferminguna lá ég á bæn og bað þann sem ég var að fara að frelsast til um að redda þessu. Og Guð hlustaði á mig enda engin flóð eða hungursneyðar á dagskránni þann daginn. Um morguninn var ég kominn með rauðu hundana, bullandi hita og óráð. Ekki þótti ráð að drösla mér í kirkjuna en ekki var aftur snúið með veisluna, hnallþórur og majonestertur fyrir 60 manns biðu alskapaðar fyrir gestina sem ekki var tími til að afboða. Ég var uppi í rúmi á meðan gestirnir gæddu sér á kræsingum í vandræðalegri þögn. Þeim var hleypt inn til mín í hollum með gjafirnar. Í svitakófi í náttfötunum talaði ég tungum undir sæng ófermdur en sæll í hjarta. Í gegnum hitaóráðið gat ég ekki betur greint en ég hefði grætt 107 þúsund kall - gamlar - plús vasatölvu og fyrstu plötu HLH-flokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun