Skútumenn játuðu að vera burðardýr 19. október 2007 00:01 Mennirnir tveir sem voru um borð í smyglskútunni hafa játða að hafa verið burðardýr.
Mennirnir tveir sem sigldu skútu til Fáskrúðsfjarðar í síðasta mánuði, þar sem voru um 40 kíló af fíkniefnum um borð, hafa játað við yfirheyrslur að hafa verið burðardýr í þessu umfangsmikla fíkniefnamáli, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Héraðsdómur úrskurðaði fjóra menn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið vegna málsins í áframhaldandi gæsluvarðhald í gær, að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Einn mannanna verður í gæsluvarðhaldi til 1. nóvember. Hann verður jafnframt áfram í einangrun vegna rannsóknarhagsmuna. Tveir úr hópnum verða áfram í gæsluvarðhaldi til 8. nóvember og einn til 29. nóvember. Ekki þótti ástæða til að úrskurða fimmta manninn í frekara gæsluvarðhald þar sem hann hefur þegar hafið afplánun vegna annarra brota. Um er að ræða annan manninn sem sigldi skútunni til Fáskrúðsfjarðar. Lögregla fór fram á áframhaldandi einangrunarvist mannanna, en Héraðsdómur féllst ekki á það, nema með einni undantekningu, sem að ofan greinir. Sjötti maðurinn, sem handtekinn var síðastliðinn mánudag, var degi síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. nóvember. Í Færeyjum situr svo Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna þessa máls. Hann var upphaflega úrskurðaður til 18. október, en gæsluvarðhaldsvistin yfir honum var síðan framlengd til 3. nóvember. Hjá honum fundust tvö kíló af amfetamíni. - jss
Pólstjörnumálið Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira