Fótbolti

Deportivo lagði Real Madrid

NordicPhotos/GettyImages

Deportivo vann í kvöld frækinn 2-0 sigur á Real Madrid í spænsku deildinni í leik sem sýndur var beint á Sýn. Capdevila kom Deportivo á bragðið eftir tíu mínútur með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu og Hildago Cristian tryggði sigurinn með marki á 56. mínútu.

Real er því sem fyrr í þriðja sæti deildarinnar með 32 stig. Sevilla er í efsta sæti með 37 stig og Barcelona er í öðru sætinu með 35 stig og á leik til góða. Klukkan 20 hefst svo bein útsending Sýnar frá lokaleiknum í dag sem er viðureign Villarreal og Valencia. Arnar Björnsson lýsir leiknum beint.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×