Fótbolti

Við vorum hræðilegir gegn Deportivo

Jose Antonio Reyes
Jose Antonio Reyes NordicPhotos/GettyImages

Jose Antonio Reyes segir að Real Madrid hafi spilað hræðilega í 2-0 tapinu gegn Deportivo í spænsku deildinni í gær og segir félaga sína í liðinu þurfa að hugsa sinn gang rækilega.

"Við vorum hræðilegir gegn Deportivo og strax og fyrsta markið þeirra tók allan vind úr liðinu okkar. Við verðum að fara að sýna meiri skapfestu og stolt á vellinum ef við ætlum okkur að gera góða hluti í vetur - og ég veit að við höfum efniviðinn til þess," sagði Reyes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×