Nash og Bosh leikmenn mánaðarins í NBA 2. febrúar 2007 01:15 Chris Bosh fór á kostum í janúar NordicPhotos/GettyImages
Steve Nash hjá Phoenix Suns og Chris Bosh hjá Toronto Raptors voru í kvöld útnefndir leikmenn janúarmánaðar í NBA deildinni, en þeir verða báðir í byrjunarliðunum í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. Bosh var kjörinn leikmaður mánaðarins í Austurdeildinni eftir að hann leiddi Kanadalið Toronto til sigurs í 10 af 15 leikjum í janúar. Bosh skoraði 25,4 stig og hirti 9,1 frákast að meðaltali í leik og toppaði ef til vill mánuðinn með því að hitta úr 15 skotum í röð í leik í fyrrinótt. Steve Nash hefur á sama hátt farið á kostum með sjóðheitu liði Phoenix og var fyrir vikið kosinn leikmaður mánaðarins í Vesturdeildinni. Nash skoraði 18 stig og gaf 13 stoðsendingar að meðaltali í leik í mánuðinum, þar sem Phoenix vann 15 af 16 leikjum sínum og jafnaði NBA metið yfir bestan árangur allra tíma í janúarmánuði. Þess má geta að 208 stoðsendingar Steve Nash í janúar eru flestar stoðsendingar eins manns á mánuði í NBA síðan árið 1995 þegar John Stockton gaf jafn margar stoðsendingar í marsmánuði það árið. Rúsínan í pylsuendanum hjá Nash var leikurinn gegn Cleveland þann 11. janúar sem sýndur var á Sýn, en hann gaf 21 stoðsendingu í leiknum þó hann fengi að hvíla lengst af í fjórða leikhlutanum þegar sigur Phoenix var nánast í höfn.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira